Lýsing
Ljúflingar / Uppáhaldsföt á yngstu börnin
Hanne Andreassen Hjelmås
Torunn Steinsland
Ljúflingar: Uppáhaldsföt á yngstu börnin inniheldur 70 uppskriftir að gullfallegum prjónaflíkum og fylgihlutum handa börnum frá fæðingu og upp í fjögurra ára. Hér er að finna einfaldar og flóknari uppskriftir, úrval fjölbreyttra heimferðasetta með peysum, buxum, húfum og sokkum. Einnig eru uppskriftir að heilgöllum, samfellum, teppum, leikföngum og fleiru.